Um okkur

Sportmenn ehf. er nýr umboðsaðili Reebok á Íslandi. Fyrirtækið hefur verið umboðsaðili adidas hér á landi síðan árið 1991 og mun sinna nýju umboði af sama krafti og heiðarleika og það hefur gert til þessa.
Vörumerkið Reebok er þekkt fyrir flotta hönnun, frumlega vöruþróun og umfram allt vandaða framleiðslu.
Spennandi tímar eru framundan hjá Reebok. Má þar helst nefna nýju EasyTone-skóna sem njóta nú mikilla vinsælda um allan heim. EasyTone-skórnir eru afrakstur ítarlegrar rannsóknavinnu en sólinn undir skónum byggir á sömu hugmynd og Pilates-æfingaboltar. Sérstakir loftpúðar eru í sólanum sem skapa aukið álag á vöðva í rassi, lærum og kálfum og styrkja skórnir þessa vöðva því sérstaklega.
Við hjá Reebok sjáum hlutina aðeins öðruvísi en aðrir. Í gegnum söguna höfum við haft hugrekki til að koma fram með flottar nýjungar. Reebok býr til vörur sem sýna ótakmarkaða sköpun og endalausa möguleika til að hjálpa fólki að ná markmiðum sínum.
Sportmenn eru staðsettir í Faxafeni 7. Sölumaður fyrir Reebok er Guðríður Erla Torfadóttir gurry@reebok.is sími 5200312.
