EasyTone -TrainTone – RunTone

Skór sem styrkja rass og læri í hverju skrefi
EasyTone skórnir frá Reebok eru sérhannaðir til þess þú fáir meira útúr hverju skrefi. Vöðvarnir vinna betur vegna loftpúða sem skapa örlítinn óstöðugleika og mýkt í hverju skrefi. Frábærir skór fyrir alla sem þurfa að vera mikið á fótum eða ferðinni. TrainTone eru fyrir ræktina og RunTone fyrir hlaupin. Munurinn er stærð loftpúðana sem eru minni í TrainTone og RunTone.
Loftpúðarnir í sólum EasyTone skóna eru afrakstur ítarlegrar rannsóknavinnu en þeir byggja á sérstakri Moving Air tækni sem má líkja við pilates æfingabolta. Loft flæðir milli púða í sólanum svo að þegar skórnir eru notaðir er eins og stöðugt sé verið að gera jafnvægisæfingar. Jafnvægisæfingar styrkja djúplæga kvið- og bakvöðva sem gerir það að verkum að bakverkir geta minnkað.
Skórnir eru ætlaðir til daglegra nota, hvort sem er í vinnu, skóla eða göngutúra. Þeir henta sérstaklega vel fyrir þá sem þurfa að standa mikið en sólinn er sérstaklega mjúkur. Ef þú vilt virkilega þægilega, flotta og góða skó sem gefa flottari rass og læri eru EasyTone skórnir eitthvað fyrir þig.
TrainTone eru frábærir fyrir alla alhliða líkamsrækt og RunTone fyrir þá sem vilja fá aðeins meira úr hverju hlaupi.
Smelltu á myndina hér fyrir ofan og þú sérð video sem útskýrir tæknina betur!!!
