Toning fatnaður

EasyTone fatnaður er með böndum sem gefa mótstöðu við hreyfingu ( resistance bands). Þegar þú klæðist EasyTone bol styrkir þú vöðva í baki og réttir betur úr þér. Buxurnar gefa mótstöðu við rass og læri og við hreyfingu styrkjast vöðvarnir.

Klikkaðu á myndina hér fyrir ofan og þú sérð video sem útskýrir tæknina betur!!!!!!!

 Fötin eru þröng eða heldur þrengri en venjuleg föt en það er einmitt til þess að böndin gefi mótstöðu. Fatnaðurinn er ætlaður til daglegrar notkunar eða í ræktina. Frábær hugmynd að nota ermalausu bolina eða undirbuxurnar sem undirfatnað í vinnu eða skóla. Þú styrkir á meðan vöðva milli herðablaða og niður með síðu. Réttir betur úr þér og líkamsstaðan verður réttari.

Fatnaðurinn kemur í ermalausum bolum, með eða án topp og með stuttum ermum.  Buxurnar eru síðar, hálfsíðar og undirbuxur.

Bolirnir eru þröngir en hægt er að nota þá sem undirfatnað bæði í ræktinni og dagsdaglega.  Það er best að taka þá stærð sem þú tekur venjulega í bolum en ekki taka stærra því þá missa böndin marks. Þau eiga liggja alveg þétt við líkamann.

Buxurnar eru frábærar halda vel við rass og læri auk þess sem þú styrkir vöðana í leiðinni. Hægt er að nota þær bæði í vinnu og skóla eða í ræktinni. Undirbuxurnar eru svo frábærar undir t.d. pils eða buxur.