Toning skór

Viltu flottari rass og læri? Þú færð meira út úr hverju skrefi í EasyTone
Toning skórnir frá Reebok eru fyrir konur sem vilja nýta tímann sinn sem best. Þegar þú hleypur í búðina, sækir barnið í skólann eða ferð út að labba með hundinn færðu meira út úr tímanum sem þú eyðir á ferðinni ef þú notar EasyTone.
EasyTone skórnir frá Reebok eru sérhannaðir til þess að skapa örlítinn óstöðugleika og mýkt í hverju skrefi
Smelltu á myndina hér fyrir ofan og þú sérð stutt video sem útskýrir tæknina betur !!!!!
Traintone skór frá Reebok- fáðu meira út úr ræktinni í TrainTone
TrainTone er hannaður fyrir ræktina. Púðarnir eru lægri en í EasyTone sem þýðir að óstöðugleikinn er minni.
Konur sem hafa prófað EasyTone skóna hafa þetta að segja um þá:
Mér finnst EasyTone skórnir virkilega þægilegir. Ég þarf að standa mikið í vinnunni en eftir að ég byrjaði að nota EasyTone skóna hafa verkir sem ég hafði í mjóbakinu minnkað töluvert. Sem einkaþjálfari mæli ég með þessum skóm því þeir gefa aukinn styrk og betra jafnvægi auk þess sem rass og læri styrkjast og mótast. Einnig eykst grunnbrennsla líkamans þegar stórir vöðvar eins og rassvöðvar styrkjast.
Gurrý, sölustjóri hjá Reebok og þjálfari hjá Hreyfingu
Ég viðra tíkina mína á hverjum degi og þá koma EasyTone skórnir mínir að góðum notum því þeir virka allt öðruvísi en venjulegir íþrótta- eða gönguskór. Rassvöðvarnir styrkjast og álagið minnkar þar af leiðandi á mjóbakið. Þessir skór svínvirka!
Ellý Ármanns, fjölmiðlakona
Ég fékk EasyTone skó í afmælisgjöf en var óviss um hversu mikið ég gæti notað þá vegna þrálátra bak og stoðkerfisvandamála. Ég er búin að vera hjá kirópraktor í 1 ár en þegar ég byrjaði hjá honum voru mjaðmirnar á mér alveg fastar en með hans hjálp eru þær farnar að liðkast aðeins. Ég ráðfærði mig við kiropraktorinn minn um skóna og hann gaf grænt ljós en bara byrja stutt í einu. Daginn eftir er löng ferð þar sem ég vissi að ég þyrfti að standa mikið og ganga. Ég ákvað að hefja daginn í EasyTone skónum og ætlaði að taka aðra með til skiptanna. Það fór þannig að hinir skórnir urðu óvart eftir heima og ég var í EasyTone í 12klst. Ég fann ekki fyrir verkjum í baki eða mjöðmum sem í svona kringumstæðum hafa einfaldlega hamlað því að ég njóti til fulls því sem fram fer, en þarna var ég verkjalaus allan daginn. Lagðist í rúmið þakklát og alsæl með EasyTone skóna og ætla sannalega að fá mér nokkur pör. Helst líka háahælaða EasyTone.
Erna Eir 56 ára
Skórnir eru tær snilld.
Ég er búin að ganga í EasyTone skónum í nokkurn tíma. Það sem kom mér mest á óvart var að ég fékk harðsperrur fyrst þegar ég fór í þeim í klukkustundar langa Stafgöngu og tel ég mig vera í mjög góðri þjálfun.
Ég þurfti ekki frekari sannana við. Skórnir svínvirka. Ég er meðvituð um líkamsstöðu mína þegar ég er í skónum, jafnvægið eykst og stærstu vöðvar líkamans (læri og rass) styrkjast. Ég mæli hiklaust með EasyTone skónum hvort heldur sem í Stafgöngu eða venjulega göngu.
Guðný Aradóttir Stafgönguleiðbeinandi og einkaþjálfari
Rebook EasyTone skórnir eru þæginlegri en ég hélt en ég þurfti þó smá tíma til að venjast þeim. Ég fann fyrir þreytu í lærvöðvunum og í bakinu til að byrja með en það fór eftir 2-3 daga og í framhaldinu fóru bakverkirnir sem ég hef þjáðst lengi af að minnka töluvert. Skórnir eru stífir og halda vel við fæturna en jafnframt er ótrúlega mjúkt að ganga á þeim og það loftar virkilega vel um fæturna en það kemur ekki fyrir að ég svitni í þeim. Í starfi mínu sem yngri barna kennari og sem móðir tveggja lítilla stelpna er ég á hlaupum allan daginn en ég finn ekki fyrir þreytu í fótunum lengur. Ég er í skónum allan daginn í vinnunni, í göngutúrunum mínum og í rauninni fer ég ekki úr þeim heima fyrir fyrr en eftir að heimilistörfum líkur á kvöldin því að ég verð mun þreyttari í fótunum með því að ganga um á sokkaleistunum einum saman. Ég er því ótrúlega ánægð með Rebook EasyTone skóna mína og mæli hiklaust með þeim fyrir alla þá sem eru mikið á fótunum!
Aðalheiður Lilja grunnskólakennari
EasyTone skórnir eru algjör snilld og bylting fyrir konur. Fyrstu skiptin sem ég notaði EasyTone fékk ég væga strengi í aftanverð læri og kálfa sem sagði mér að skórnir eru klárlega að virka. Ómissandi eintak fyrir konur sem vilja tóna og styrkja fætur allan daginn.
Hrafnhildur Halldórsdóttir einkaþjálfari og fitness keppandi
